NÝJUSTU FRÉTTIR

Skólabyrjun 2018

Skólasetning verður fimmtudaginn 23. ágúst.Kl. 9:00 Nemendur í 2. – 6. bekk.Kl. 10:00 Nemendur í 7. – 10. bekk.Nemendur í 1. bekk mæta í viðtöl til umsjónarkennara ásamt foreldrum sínum þennan dag. Boðað verður til viðtalanna bréfleiðis. Mótttaka nýrra nemenda sem […]

Skrifstofa Smáraskóla

Skrifstofa Smáraskóla er lokuð frá og með 20. júní til og með 7. ágúst 2018 vegna sumarleyfa

Skólaslit og útskrift 2018

Skólaslit eru fimmtudaginn 7. júní á eftirtöldum tímum: Nemendur í 1. – 5. bekk kl. 9:00 Nemendur í 6. – 9. bekk kr. 10:00 Útskrift nemenda í 10. bekk er þennan sama dag kl. 15:00.

Aðalfundur foreldrafélags

15. maí 2018 Aðalfundur foreldrafélags Smáraskóla verður haldinn þriðjudaginn 15. maí 2018 klukkan 19:00 í sal skólans. Í samræmi við lög félagsins verða valdir 2 stjórnarmenn til 2 ára, 3 í varastjórn til eins árs og kosið um formann til eins […]

Heilsudagar og páskafrí

Á morgun og föstudag eru heilsudagar í Smáraskóla. Hefðbundinn dagur er á morgun en á föstudag er skertur dagur samkvæmt skóladagatali en þá eru nemendur í 5.-10.bekk í skólanum til 11.30 en nemendur í 1.-4.bekk til 11.20, dægradvöl tekur svo við […]

Lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar í Kópavogi

Lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar var í gær í Salnum. Fulltrúar Smáraskóla þær Hrafnhildur Davíðsdóttir og Salka Heiður Högnadóttir stóðu sig mjög vel og lenti Salka Heiður í 3. sæti. Við óskum stelpunum til hamingju með frammistöðuna.

Páskabingó foreldrafélags Smáraskóla

Á laugardaginn, þann 17. mars, verður hið sívinsæla páskabingó foreldrafélags Smáraskóla á milli kl. 11 og 13. Flottir vinningar. Veglegar veitingar verða reiddar fram af nemendum í 10. bekk skólans. Veitingasalan er liður í fjáröflun þeirra fyrir útskriftarferð. Við hvetjum nemendur og […]

Stóra upplestrarkeppnin í Smáraskóla

Stóra upplestrarkeppnin í Smáraskóla var haldinn hátíðleg föstudaginn 2. mars.  Keppnin er fyrir nemendur í 7. bekk.  19 nemendur tóku þátt og stóðu þau sig öll með mikilli prýði.  Efstu þrír nemendurnir í keppninni voru Hrafnhildur Davíðsdóttir, Salka Heiður Högnadóttir og […]

Óveður gengur nú yfir höfuðborgarsvæðið

Appelsínugul viðvörun er í gildi vegna veðurs á höfuðborgarsvæðinu og er því tilkynning 2 virkjuð. Tilkynning „Veður getur seinkað ferðum nemenda til skóla. Skólar eru opnir, en mikilvægt er að foreldrar gæti þess að yngri börn fari ekki ein í skóla, […]