Bekkjafulltrúar – hlutverk

Bekkjarfulltrúar eru tengiliðir við stjórn foreldrafélagsins.
Bekkjarfulltrúar allra bekkja mynda fulltrúaráð foreldrafélagsins og funda með stjórn þess minnst einu sinni fyrir áramót og einu sinni eftir áramót til að samræma störf og til að fá yfirsýn yfir foreldrastarfið í skólanum.
Bekkjarfulltrúar hafa frumkvæði að því að kalla eftir bekkjarsamkomu en bera ekki einir ábyrgð á framkvæmd hennar.
Bekkjarfulltrúar bera ábyrgð á að virkja með sér aðra foreldra til að manna þær rölthelgar sem bekknum er úthlutað.

Bekkjarfulltrúar geta leitað til foreldrafélagsins með hvað sem er.

Upplýsingar um símanúmer þeirra sem eru í stjórn foreldrafélagsins eru hér vinstra megin á síðunni undir Stjórnir foreldrafélagsins.

Upplýsingabækling má nálgast hér: