NÝJUSTU FRÉTTIR

Frábær árangur Smáraskóla í grunnskólakeppni Samróms!

Smáraskóli tók nýverið þátt í „Grunnskólakeppni Samróms“. Samrómur er hluti af stóru samstarfsverkefni íslenskra háskóla, stofnana, fyrirtækja og félagasamtaka, sem munu á næstu árum þróa hugbúnað sem skilur og talar íslensku. Í grunnskólakeppni Samróms söfnuðu nemendur upptökum af sér að lesa […]

Skipulagsdagur – föstudag 2. okt

Föstudaginn 2. október er skipulagsdagur í Smáraskóla skv. skóladagatali. Drekaheimar eru opnir frá 8.00-17.00 fyrir þá nemendur sem þar eru skráðir.

Miðvikudagur 16. september

Skrifstofa Smáraskóla og frístundaheimilið Drekaheimar verða lokuð frá og með kl. 14:30 miðvikudaginn 16. september vegna samverustundar starfsmanna í kjölfar fráfalls góðs samstarfsmanns og félaga, Eiríks Þórs Vattnes Jónassonar.

Skólabyrjun – Skólaárið 2020-2021

Skólasetning verður þriðjudaginn 25. ágúst. Að þessu sinni koma nemendur til skólasetningar án foreldra eða annarra gesta en foreldrar hafa fengið tölvupóst með helstu upplýsingum. Skólasetning: Nemendur í 2.-4. bekk mæta kl. 8:30 og eru í skólanum til kl. 10:00. Inngangur: […]

Skólasetning verður þriðjudaginn 25. ágúst

Nemendur koma til skólasetningar án foreldra eða annarra gesta og foreldrar koma ekki inn í skólahúsið nema brýna nauðsyn beri til eða þeir hafi verið boðaðir sérstaklega. Skólastjóri mun hitta nemendur á sal og þeir eiga síðan stund með umsjónarkennurum þar […]