Innritun í grunnskóla Kópavogs fyrir skólaárið 2024 – 2025

Innritun 6 ára barna (fædd 2018) fer nú alfarið fram í gegnum þjónustugátt á vef bæjarins https://thjonustugatt.kopavogur.is

Opnað hefur verið fyrir innritun fyrir næsta skólaár og stendur hún til 8. mars 2024.

Sömu daga fer fram innritun nemenda sem flytjast milli skólahverfa og þeirra sem flytja í Kópavog eða koma úr einkaskólum.

Skráning í mötuneyti, sumarfrístund og frístund fyrir næsta skólaár verður auglýst síðar og munu foreldrar frá póst frá skólanum þegar þar að kemur.

Haustið 2024 munu skólar hefjast með skólasetningardegi föstudaginn 23. ágúst. Nánari upplýsingar um skólabyrjun munu birtast á heimasíðum skólanna.

Sérstök athygli er vakin á því að umsóknarfrestur um heimild til að stunda nám í einkaskólum eða grunnskólum annarra sveitarfélaga er til 1. apríl og skal  sækja um á þjónustugátt Kópavogs. Sækja þarf um að nýju fyrir nemendur sem nú eru í slíkum skólum, ef gert er ráð fyrir að þeir verði þar næsta vetur.

Menntasvið Kópavogsbæjar

Innritun 2024_isl_ens_pol

Posted in Fréttaflokkur.