Kóramótið Norbusang

Kóramótið Norbusang var haldið í Kópavogi dagana 13.-17. maí og var skipulagt af UngíKór Íslandi. Dagskrá hátíðarinnar samanstóð af vinnustofum, tónleikum, kóræfingum og samveru.
Skólakór Smáraskóla tók þátt og 3 stúlkur úr 10.bekk voru sjálfboðaliðar á mótinu ásamt 20 ungmennum frá öllum Norðurlöndunum.
Kórinn söng meðal annars á tónleikum í Kópavogslaug og á lokatónleikum mótsins í Digraneskirkju.

Posted in Fréttaflokkur.