Skólabyrjun

Skólasetning verður þriðjudaginn 23. ágúst. Skólastjóri mun hitta nemendur á sal og þeir eiga síðan stund með umsjónarkennurum þar sem farið verður yfir skipulag fyrstu daganna og hefja skólastarf. Foreldrar eru velkomnir til skólasetningar.

Verðandi 1. bekkingar fá boð frá sínum umsjónarkennurum en þeir koma til viðtals ásamt foreldrum dagana 22.-23. ágúst.

Verðandi 8. bekkingar leggja af stað í Laugavegsgöngu sína á skólasetningardegi.

Athugið að frístundaheimilið er lokað á skólasetningardegi.

 Skólasetning:

  • Nemendur í 2.-4. bekk mæta kl. 9:00 og eru í skólanum til kl. 9:45.
  • Nemendur í 5.-7. bekk mæta kl. 10.00 og eru í skólanum til kl. 10.45.
  • Nemendur í 9.-10. bekk mæta kl. 11:00 og eru í skólanum til kl. 11:45.

Kennsla hefst miðvikudaginn 24. ágúst samkvæmt stundaskrám.

Posted in Fréttaflokkur.