Bóndadagur

Gleðin var ríkjandi í Smáraskóla sl. föstudag þegar allir nemendur skólans söfnuðust saman til samsöngs á sal. Tilefnið var að fagna bóndadegi sem er fyrsti dagur þorra samkvæmt gamla íslenska tímatalinu. Nemendur og starfsfólk sungu saman þorrasöngva og margir klæddust lopapeysum […]

Samráðsferli vegna fyrirhugaðrar stækkunar Smáraskóla og þróunar skólastarfs

Undanfarnar vikur hefur staðið yfir samráðsferli vegna fyrirhugaðrar stækkunar Smáraskóla og áframhaldandi þróunar á skólastarfinu. Ingvar Sigurgeirsson, prófessor við menntavísindasvið HÍ, hefur stýrt vinnunni og verið skólastjórnendum til ráðgjafar við verkefnið. Haldin hafa verið nemenda-, foreldra- og starfsmannaþing þar sem áherslan […]

Foreldrafélag færir Friðþjófi þakkir

Friðþjófur Helgi Karlsson lét af störfum sem skólastjóri Smáraskóla eftir rúmlega 9 ára starf. Foreldrafélagið þakkar honum fyrir farsælt samstarf og óskar honum alls hins besta í þeim verkefnum sem hans bíða. Í kveðjugjöf færði Stjórn foreldrafélagsins honum gjafabréf og blómvönd.

Jólafrí

Frá og deginum í dag eru nemendur komnir í jólafrí.  Kennsla hefst aftur föstudaginn 4. janúar samkvæmt stundaskrá.

Gleðileg jól

Kæru foreldrar. Ég óska ykkur og börnum ykkar gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.  En um leið vil ég þakka ykkur fyrir samstarfið og samfylgdina þau rúmu níu ár sem ég hef starfað við skólann. Hafið hjartans þökk fyrir. Með […]

Viðmið um samskipti foreldra og kennara

Góð samskipti foreldra og kenna eru lykilatriði varðandi nám og velferð barna í grunnskóla. Mikilvægt er fyrir báða aðila að skýr viðmið séu um hvernig þeim samskiptum er háttað og upplýsingum miðlað milli aðila. Með nýjum persónuverndarlögum eru einnig auknar kröfur […]