Stóra upplestrarkeppnin í Smáraskóla var haldinn hátíðleg föstudaginn 2. mars. Keppnin er fyrir nemendur í 7. bekk. 19 nemendur tóku þátt og stóðu þau sig öll með mikilli prýði. Efstu þrír nemendurnir í keppninni voru Hrafnhildur Davíðsdóttir, Salka Heiður Högnadóttir og Róbert Dennis Solomon. Hrafnhildur og Salka Heiður verða því fulltrúar Smáraskóla og Róbert Dennis til vara í lokakeppninni sem haldin verður síðar í mánuðinum í Salnum hér í Kópavogi.
Stóra upplestrarkeppnin í Smáraskóla
Posted in Fréttaflokkur.