Hádegismatur

Kópavogsbær hefur samið við Skólaask (ISS) um framreiðslu á hádegismat fyrir nemendur og starfsfólk. Maturinn er forunninn í höfuðstöðvum fyrirtækisins og kemur tilbúinn til eldunar í eldhúsi Smáraskóla. Starfsmaður ISS sér um allt er viðkemur meðhöndlun og afgreiðslu matarins og er foreldrum bent á að hafa samband við hann í gegnum skrifstofu skólans. Allar nánari upplýsingar um fyrirtækið og pantanir er að finna á heimasíðu þess https://skolaaskur.is

Posted in Fréttaflokkur.