Smurbrauðsgerð í 10. bekk

Nemendur í 10. bekk hafa verið að læra um danskar matarvenjur. Á miðvikudaginn fengu þeir góðan gest í heimsókn þegar Hrefna kennari á yngra stigi kom i heimsókn og kenndi þeim að gera Smørrebrød að dönskum sið 🇩🇰 Nemendur stóðu sig […]

Litla upplestrarkeppnin og hjólaferð í Gróttu

Þessa vikuna hjóluðu nemendur 6. bekkjar í Gróttu á Seltjarnarnesi og gistu þar eina nótt. Ekki munaði nema einum degi að nagladekk hefðu þurft til. Litla upplestrarkeppnin hjá 4. bekk ásamt tónlistaratriðum var haldin í morgun þar sem foreldrum var boðið […]

Barnamenningarhátíð

/Myndir Anton Brink Marimbasveit Smáraskóla spilaði í anddyri Salarins og vígði þar nýja búninga sem þær unnu í samvinnu við Telmu Ýr snillismiðjukennara og Lilju textílkennara. Stelpurnar stóðu sig frábærlega. Barnakór og Skólakór Smáraskóla sungu fyrir fullum sal inni á sviði […]

Stærðfræðikeppni MR

Í gær fór fram verðlaunaafhending í stærðfræðikeppni MR. Þau Sólveig Freyja í 8.bekk og Mikael Nói í 10. bekk höfnuðu þar bæði í 2.sæti. Innilegar hamingjuóskir með frábæran árangur.

Árshátíðavika og páskabingó

Þessa vikuna hafa allir árgangar skólans haldið sínar árshátiðir. Á miðvikudag var foreldrafélagið með páskabingó til styrktar 10.bekkjar útskriftarferðar og árshátíð Þebu/unglingadeildar var haldin í gærkvöldi. Framundan er páskafrí, skólahald hefst að nýju skv. stundaskrá þriðjudaginn 11. apríl.

Páskabingó Smáraskóla

29. mars 2023 kl. 17-19. Fjáröflun fyrir útskriftarferð 10. bekkjar í vor. Glæsilegir vinningar! Veitingasala, pizzusneiðar, drykkir og fleira. Verð á spjöldum 1 spjald á 500 kr. 3 spjöld á 1200 kr.