Lesum í takt

Á föstudaginn hófst bráðskemmtilegt lestrarátak hér í Smáraskóla sem kallast: Lesum í takt!
Hver nemandi fékk sína nótu sem færist svo upp tónstigann í takt við lesnar mínútur.
Hvert ,,stopp“ hjá nótunni upp tónstigann tengist einum tónlistarmanni úr Kópavogi, og munu nemendur því auk þess kynnast þeim og þeirra tónlist á meðan á lestrarátakinu stendur.
Skólinn er nú fallega skreyttur tónstigum og það verður gaman að fylgjast með ferðalagi nótnanna næstu daga. Hver veit nema útkoman verði síðan eitt stórt tónverk að lestrarátakinu liðnu, en því lýkur þann 4. maí.

Posted in Fréttaflokkur.