Ís tilraun í 2. bekk

Á dögunum fengu nemendur í öðrum bekk að spreyta sig á því að búa til ís í náttúrufræðitíma.
Tilraunin fór þannig fram að nemendur settu innihaldsefnin fyrir ísgerðina í lítinn poka og ísmola og salt í annan stærri. Litli pokinn fór svo ofan í þann stærri og hristur vel og lengi.
Að lokum, eftir smávegis sull og kalda putta, var ísinn tilbúinn og þá var komið að því allra besta… að fá skeið og smakka sinn eigin ís!
Virkilega skemmtileg tilraun sem heppnaðist ljómandi vel, eins og sjá má á myndunum af glöðum nemendum.

Posted in Fréttaflokkur.