Fjölgreindaleikar

Í síðustu viku fóru fram vel heppnaðir Fjölgreindaleikar hér í Smáraskóla. Nemendum var skipt í hópa, þar sem hver hópur samanstóð af fulltrúum úr hverjum árgangi skólans. Elstu nemendur fengu hlutverk fyrirliða og héldu vel utan um sinn hóp. Það var virkilega ánægjulegt að sjá flotta liðsheild skapast og allir lögðu sitt af mörkum.
Fjölgreindaleikarnir hafa verið árviss viðburður hjá okkur í Smáraskóla um langt skeið. Hugmyndin með Fjölgreindaleikum er að búa til skemmtilega daga þar sem nemendur og starfsfólk sameinast í leik, fræðslu og skemmtun. Hugsunin er að bjóða upp á fjölbreyttar þrautir þar sem allir fá tækifæri til að spreyta sig við mismunandi verkefni og þar sem sterku hliðar allra fá að njóta sín einhverstaðar.
Leikarnir eru byggðir út frá kenningum Howard Gardners um fjölgreindirnar þar sem gengið er út frá því að allir séu góðir í einhverju og að það eigi að gefa öllum tækifæri til að fást við það sem þeir eru sterkir í.
Við hér í skólanum teljum Fjölgreindaleikana vera frábæra viðbót við hið fjölbreytta starf sem unnið er í skólanum og það var virkilega skemmtilegt að fylgjast með nemendum okkar vinna svona vel saman og njóta sín í fjölbreyttum verkefnum og þrautum.

Posted in Fréttaflokkur.