Kópurinn – viðurkenning fyrir framúrskarandi skólastarf

Í gær var Kópurinn – viðurkenning menntaráðs fyrir framúrskarandi skóla- og frístundastarf, afhentur í Salnum. Að þessu sinni voru þrjú verkefni tilnefnd frá Smáraskóla:
– „Ísbúð“ í 4. bekk, höfundar Guðbjörg Sigurðardóttir og Kristín Sigurðardóttir
– „Laugavegsganga“ 8. bekkjar, rógróið verkefni í starfi skólans
– „Orðaflúr og orðaflaumur“ – íslenskuverkefni á unglingastigi. höfundar; Guðrún Dröfn Ragnarsdóttir, Steinunn Gerður Kristjánsdóttir, Kristín Jóna Kristjónsdóttir og Anna Þórunn Guðmundsdóttir.
Alls voru tilnefnd 35 verkefni frá grunnskólum og frístundaheimilum/félagsmiðstöðvum bæjarins og voru sjö þeirra verðlaunuð sérstaklega.
Skemmst er frá því að segja að tvö af verkefnunum okkar voru meðal þeirra, Laugavegsgangan og Orðaflúr og orðaflaumur.

Posted in Fréttaflokkur.