Viðburðarík vika í aðdraganda jóla

Það eru búnir að vera ýmsir viðburðir í vikunni hjá okkur. Á miðvikudag var gengin árleg Friðar- og ljósaganga umhverfis tjörnina í Kópavogsdal eftir að B-sveit Skólahljómsveitar Kópavogs  hafði leikið nokkur lög fyrir nemendur skólans. Við heimkomu tók á móti nemendum heitt kakó með rjóma eftir hressandi göngu.
Á fimmtudag var öllum nemendum og starfsfólki boðið í jólamat og á föstudag var rauður dagur / jólapeysudagur. Nemendur söfnuðust saman í miðrými skólans og sungin voru nokkur jölalög sem Börkur skólastjóri og Ásta tónmenntakennari leiddu.

Posted in Fréttaflokkur.