Stóra upplestrarkeppnin

Á mánudaginn 9.mars var haldin undankeppni Smáraskóla fyrir Stóru upplestrarkeppnina. Þrettán nemendur tóku þátt í keppninni og stóðu sig allir með miklum sóma. Tveir fulltrúar ásamt einum varafulltrúa voru valdir til að taka þátt fyrir hönd skólans í lokakeppninni sem verður haldin í Salnum, þriðjudaginn 24. mars kl. 14:30. Sigurvegarar skólakeppninnar voru þau Rebekka Grace Couper, Styrmir Orri Orrason og Róbert Leó Eiríksson.

Posted in Fréttaflokkur.