Öskudagur

Það var mikið fjör í skólanum í dag. Öskudagurinn byrjaði á sal þar sem sungið var og dansað. Að samkomunni lokinni höfðu nemendur frjálst val um fjölmargar og fjölbreyttar stöðvar sem settar höfðu verið upp um allan skólann. Að loknum skóladeginum var boðið upp á pizzur og glaðning frá foreldrafélaginu.

 

Posted in Fréttaflokkur.