Eftirfarandi kannanir og próf eru hugsuð til leiðsagnar.
Sérkennarar skólans og umsjónarkennarar koma sér saman um hvaða kannanir og próf eru lögð fyrir nemendur og hvenær.
Lestarkannanir. Einstaklingspróf að hausti. Lestrarkönnun 1 RL o.fl. Sérkennarar fylgjast með stöðu nemenda í samvinnu við umsjónarkennara.
Læsi fyrir 2. bekk. Lagt fyrir í október og mars fyrir þá nemendur sem hafa forsendur að taka prófið. Fyrri læsipróf lögð fyrir nemendur þegar það er raunhæft.
Talnalykill, staðlað próf í stærðfræði. Hóppróf lagt fyrir alla á haustönn og síðan einstaklingspróf fyrir þá nemendur sem koma ekki vel út úr hópprófi.Aston Index, stafsetningarpróf fyrir 2. bekk. Lagt fyrir að hausti.
Lestrar- og málþroskapróf TOLD. Sérkennarar og umsjónarkennarar koma sér saman um að prófið skuli lagt fyrir. Sérkennarar annast framkvæmdina.
Fjölda- og talnaskilningur. Einstaklingspróf. Próf Eiríks Ellertssonar lagt fyrir eftir þörfum.
Samskiptakannanir eftir þörfum.
Viðhorfskannanir, svo sem tengslakannanir, Ég og skólinn eða eineltiskönnun fari fram í jan. fyrir foreldradag.Kynna verður foreldrum/forráðamönnum fyrirlögn skimana og leita leyfis þeirra vegna fyrirlögn greinandi prófa. Niðurstöður úr prófunum ber að kynna foreldrum með bréfi eða á fundi.