Sáttmáli um símafrí

 

Sáttmáli um símafrí
í skóla- og frístundastarfi í grunnskólum Kópavogs

Sáttmálinn er sameiginleg yfirlýsing skólasamfélags Kópavogs um gildi, ábyrgð og framtíðarsýn varðandi símanotkun. Nemendur, foreldrar, starfsfólk og stjórnendur sammælast um símafrí með það að markmiði að skapa námsfrið, vellíðan og jákvætt félagslegt umhverfi. Samhliða er stuðlað að jafnræði og samræmi á milli skóla og dregið úr neikvæðum áhrifum skjánotkunar.

  • Nemendur í 1. – 7. bekk geyma síma og símaúr heima eða á hljóðri stillingu í tösku.
  • Nemendur í 8. – 10. bekk geyma síma og símaúr á hljóðri stillingu þar sem hann truflar þá ekki.
  • Frímínútur eru skjálausar.
  • Fullorðnir eru fyrirmyndir.
  • Við lærum saman um ábyrga skjánotkun.
  • Við stöndum saman um símafrí í skóla- og frístundastarfi.

Samráðsferli

Í tengslum við vinnu við sameiginlegan sáttmála um símafrí í skóla- og frístundastarfi voru lagðar fyrir viðhorfskannanir meðal nemenda, foreldra og fagfólks í grunnskólum Kópavogsbæjar. Unnið var úr könnunum og niðurstöður þeirra kynntar í mennta-og ungmennaráði.

Samráðshópur hagaðila hélt þrjá fundi dagana 12., 20. og 27. janúar 2026. Í hópnum áttu sæti tveir fulltrúar grunnskólanemenda frá ungmennaráði, einn fulltrúi foreldra úr stjórn Samkóps, einn fulltrúi skólastjóra, einn fulltrúi kennara og þrír starfsmenn menntasviðs, þ.e. verkefnastjóri UT-mála, skrifstofustjóri, deildarstjóri grunnskóladeildar og sviðsstjóri menntasviðs.

Starfsmenn menntasviðs kynntu niðurstöður viðhorfskannana fyrir menntaráði 20. janúar og fyrir ungmennaráði 19. og 26. janúar. Ungmennaráð skilaði inn umsögn eftir seinni kynningarfundinn. Í framhaldinu settu starfsmenn menntasviðs niðurstöður og tillögur að sáttmála fram í samræmi við áherslur hagaðila.

Gert er ráð fyrir að kynning á sáttmálanum fari fram í febrúar 2026.

Nánari lýsing á sáttmála um símafrí í skóla- og frístundastarfi á skólatíma

 

Markmið sáttmálans

Markmið sáttmálans er að skapa öruggt og félagslega sterkt skóla-og frístundaumhverfi þar sem nemendur fá tækifæri til að einbeita sér að námi, samskiptum og vellíðan. Sáttmálinn byggir á trausti, samvinnu og ábyrgð. Hann er sameiginleg yfirlýsing nemenda, foreldra og starfsfólks.

Geymsla síma og símaúra

  • Nemendur í 1. – 7.bekk geyma síma og símaúr heima eða á hljóðlausri stillingu í skólatösku á skóla- og frístundatíma.
  • Nemendur í 8. – 10. bekk bera aukna ábyrgð á eigin símanotkun og tryggja að sími eða símaúr trufli hvorki þá sjálfa né aðra. Síminn er geymdur á hljóðlausri stillingu í skólatösku, eða þar sem hann truflar nemendur ekki í daglegu skólastarfi.

Undantekningar geta átt við þegar sérstakar aðstæður eru fyrir hendi t.d. vegna heilsu, tungumála, sjónræns skipulags eða annarra einstaklingsbundinna þarfa.

Símtæki nemenda eru á þeirra eigin ábyrgð í skólanum.

 

Skjálausar frímínútur

Frímínútur eru skjálausar og ætlaðar til uppbyggingar félagslegra tengsla í gegnum leik, hreyfingu, samtal og samveru.

Ungmennaráð leggur ríka áherslu á að aðrir valkostir til afþreyingar þurfi að vera til staðar í frímínútum. Fjölbreytt afþreying felur meðal annars í sér aðgengi að spilum, leiktækjum, bókasafni og hreyfingu úti og inni.

 

Neyðartilvik

Ef neyðartilvik koma upp sjá fullorðnir í skólanum um samskipti og aðgerðir samkvæmt viðbragðsáætlun skólans. Nemendur treysta á skólann við slíkar aðstæður.

Neyðartilvik eru alvarleg og ófyrirséð atvik sem varða heilsu, öryggi eða persónulegar aðstæður.

Í neyðartilvikum skal nýta símkerfi skóla til samskipta við heimili nemenda. Persónulegur sími nemanda er aðeins notaður með skýru leyfi starfsfólks og þegar símkerfi skóla er ekki tiltækt.

Stjórnendur og starfsfólk skóla nýta síma sem vinnutæki á skólatíma.

  • Stjórnendur og starfsfólk þurfa að nota farsíma í tengslum við skólastarf vegna skipulags, skráningar og öryggis.
  • Stjórnendur og starfsfólk skóla notar farsíma í vettvangsferðum eða ferðalögum á vegum skóla.

Við ófyrirséðar breytingar á skólatíma vegna öryggis (t.d. vegna rýmingar, veðurs) eða ef truflun verður á samgöngum sem krefst tafarlausra upplýsinga til foreldra eru samskiptaleiðir skóla notaðar samkvæmt starfsáætlun.

Hvenær getur persónulegur sími nemanda verið notaður á skólatíma?

  • Þegar nemandi fær skýrt leyfi starfsfólks til að nota símann.

Slíkar undantekningar eiga að vera sjaldgæfar.

Dæmi um hvenær þarf ekki að nota persónulegan síma á skólatíma?

  • Þegar nemandi gleymir nesti, íþróttafötum eða námsgögnum heima.
  • Þegar leysa þarf almenn skipulagsmál (dæmi: æfingar, leikstundir, skilaboð til vina).
  • Þörf fyrir að skoða samskipti á netinu.

Nemendur leita til starfsfólks þegar þeir þurfa stuðning og úrlausn sinna mála.

Fullorðnir sem fyrirmynd

Starfsfólk og foreldrar eru fyrirmyndir í skólasamfélaginu. Mælst er til að fullorðnir noti ekki persónulega síma eða símaúr í augsýn nemenda í skólanum nema nauðsyn beri til.  Með þessu er stuðlað að samræmdum skilaboðum, trúverðugleika sáttmálans og  trausti milli allra aðila.

Fræðsla og samtal

Sáttmálinn er einnig lærdómsferli. Nemendur fá tækifæri til að fræðast um áhrif skjá- og símanotkunar á líðan, heilsu, svefn, einbeitingu og samskipti. Stafræn borgaravitund er kennd í grunnskólum Kópavogs og unnið hefur verið aðgengilegt fræðsluefni á vefnum Vitundin.is.

Áhersla er lögð á að læra ábyrga notkun tækni fremur en að forðast hana alfarið.

Samtal um skjánotkun á að vera opið, aldursmiðað og byggt á gagnkvæmri virðingu.

 

Sameiginleg ábyrgð og endurskoðun

Allir aðilar skólasamfélagsins standa saman að sáttmálanum.

Nemendur, starfsfólk skóla og foreldrar taka virkan þátt í að meta hvernig gengur og fá tækifæri til að koma að endurskoðun sáttmálans þegar reynsla hefur skapast.

Viðurkennt er að breyting á venjum og menningu tekur tíma og þarf að byggjast á trausti, samvinnu og stöðugri umræðu.

Samþykkt í menntaráði Kópavogs dags 3. febrúar 2026