Stjórn félagsins skal skipuð sjö félögum sem kosnir eru á aðalfundi. Tveir þeirra eru einnig fulltrúar foreldra í skólaráði, samanber 7. grein laga félagsins.
Stjórn foreldrafélags Smáraskóla 2024-2025
– Kristján Haukur Flosason formaður (og ritari) og fulltrúi í skólaráði
– Stella Rún Steinþórsdóttir, gjaldkeri
– Guðrún Svava Baldursdóttir (Dúna), fulltrúi í skólaráði og röltfulltrúi
– Hildur Einarsdóttir, fulltrúi félagsins hjá Samkóp
– Guðrún Lilja Tryggvadóttir, meðstjórnandi
– Lísa Pétursdóttir, meðstjórnandi
– Telma Sæmundsdóttir, meðstjórnandi
– Bergljót Pétursdóttir, meðstjórnandi
Við grunnskóla skal starfa 9 manna skólaráð sem er samráðsvettvangur
skólastjóra og skólasamfélags um skólahald.
Skólastjóri hefur forgöngu um stofnun skólaráðs. Hann situr í skólaráði og stýrir starfi þess. Auk skólastjóra sitja í skólaráði tveir fulltrúar foreldra, tveir fulltrúar kennara, einn fulltrúi annars starfsfólks skólans, tveir fulltrúar nemenda og einn fulltrúi grenndarsamfélags eða viðbótarfulltrúi úr hópi foreldra valinn af öðrum fulltrúum skólaráðs. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans í samræmi við stefnu sveitarfélags um skólahald.
Skólaráð:
a. fjallar um skólanámskrá, rekstraráætlun, starfsáætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið,
b. fjallar um fyrirhugaðar meiriháttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla og gefur umsögn áður en endanlegar ákvarðanir um þær eru teknar,
c. tekur þátt í að móta stefnu og sérkenni skóla og tengsl hans við grenndarsamfélagið,
d. fylgist með öryggi, húsnæði, aðstöðu, aðbúnaði og almennri velferð nemenda,
e. fjallar um skólareglur, umgengnishætti í skólanum,
f. fjallar um erindi frá skólanefnd sveitarfélags, foreldrafélagi, kennarafundi, almennum
starfsmannafundi, nemendafélagi, einstaklingum, menntamálaráðuneyti, öðrum aðilum varðandi málefni sem talin eru upp í þessari málsgrein og veitir umsögn sé þess óskað,
g. tekur þátt í öðrum verkefnum á vegum skólanefndar að fengnu samþykki sveitarstjórnar.
Skólaráð fjallar ekki um málefni einstakra nemenda, foreldra eða starfsfólks skóla.