Annað dæmi um samning
Við foreldrar barna í _______bekk í Smáraskóla munum standa saman um:
- Að virða lögboðinn útivistartíma.
- Að taka þátt í skóla-, íþrótta- og tómstundastarfi barna okkar, meðal annars með því að leggja okkar af mörkum til foreldrastarfs.
- Að vera vakandi yfir einelti og láta skóla og/eða foreldra vita ef við teljum barn geranda eða þolanda eineltis.
- Að sýna samábyrgð með því að ganga úr skugga um að foreldrar gestkomandi barna viti af þeim á heimili okkar.
- Að kynnast vinum og skólafélögum barna okkar og hafa samráð við foreldra þeirra.
- Að byggja upp sjálfstraust og sjálfsvirðingu barna okkar og kenna þeim að sýna hvert öðru og starfsfólki skólans tillitssemi og virðingu.
- Að stuðla að góðum bekkjaranda meðal annars með því að gæta þess að engum bekkjarfélaga finnist hann vera út undan, til dæmis þegar boðið er í afmæli.
- Að gæta þesss að á heimili okkar hafi börn aðeins aðgang að kvikmyndum, tölvuleikjum og efni á Netinu sem hæfir aldri þirra og þroska.